Ég fékk samtals 2 kvartanir um að síðasta færsla hefði verið
LEIÐINLEG svo ég ætla að gera nýja. Veit ekki um hvað hún ætti að
vera svo ég ætla að gera svona lame "50 atriði um mig" eins og á
svo mörgum öðrum bloggsíðum. Þar sem ég er einstaklega áhugaverð
manneskja verður þetta örugglega skemmtilegt.
1. Ég heiti Sigríður Birta Kjartansdóttir, er hins vegar
ekki kölluð það nema af kennurum og bankastarfsmönnum. Flestir
kalla mig Siggu, Sísu eða Birtu.
2. Ég er tvítug, og verð tuttugu og eins 12. október.
3. Ég var lang yngst af öllum mínum vinkonum þangað til ég
kynntist Sigrúnu í október.
4. Aldur er samt afstæður að mínu mati. Það eru ekki árin sem
skipta máli, heldur þroskinn. Úh yeah!
5. Ég fór í sex vikna Interrail með bestu vinkonum í heimi í
sumar. Frábært ferðalag en samt varð ferðin eiginlega ekki
skemmtileg fyrr en þegar ég var komin á mitt ástækra ylhýra Ísland.
Þar sem er mjúkt rúm, góður matur, gott loftslag og svo
framvegis.
6. Ég útskrifaðist úr FG á þremur og hálfu ári.
7. Núna er ég í HÍ í lögfræði.
8. Það er mjög gaman þar þótt ég sé ekki beint að brillera
ennþá. Ætla bara að taka þetta í vor og stend við það.
9. Þegar ég var lítil talaði ég sænsku og íslensku með sænskum
hreim. Ég bjó nefnilega í Gautaborg.
10. Ég vann í 11-11 í þrjú ár.
11. Ég er 162 sm á hæð. Ég er samt mjög ánægð með það. og finnst
bara kúl að vera lítil.
12. Ég mætti hins vegar vegar léttari en það er bara eitt af
verkefnum ársins - grennast.
13. Þegar ég var lítil var ég svo einstaklega súper-dúper
ljóshærð (hvíthærð) að þegar ég var úti í útlöndum (utan Íslands)
dýrkaði fólk mig og vildi fá að snerta á mér hárið. Meira að segja
í Svíþjóð.
14. Núna er ég hins vegar með skollitað hár sem er frekar brúnt
heldur en ljóst. Hef samt tekið eftir því að í augum stráka er ég
ljóshærð.
15. Ég hef upplifað líf mitt sem fáránlega rómantíska gamanmynd
þar sem ég sjálf er Meg Ryan (þið vitið um hvað ég er að
tala....)
16. Líf mitt er samt ekkert sérlega rómantískt í augnablikinu og
það fyndna er að mér er nákvæmlega sama.
17. Sumar vinkonur mínar telja að ég sé karlmaður against all
odds. Bara af því ég er ekki hrifin af súkkulaði, væmni, rómantík
og verslunarleiðöngrum.
18. Mér finnst rosalega gaman að sitja á kaffihúsum og
spjalla.
19. Mér finnst ekki gaman að keyra bíl með farþega. Það er hins
vegar gaman þegar ég er ein.
20. Í Interrail fékk ég tugi moskítóbita. Ég var með ofnæmi
fyrir bitunum svo þau urðu ógnarstór, svo þegar þau loksins hurfu
fékk ég exem eftir þau.
21. Ég varð brúnust af stelpunum úti (þetta varð ég að skrifa!).
Samt ekkert mjög brún. Varð miklu brúnni á Kanarí, besta
útlandaferð sem ég hef farið í.
22. Það tekur mig minna en fimm mínútur að gera hárið á mér fínt
eftir sturtu.
23. Það tekur mig hins vegar þó nokkuð lengri tíma að vera í
sturtunni sjálfri.
24. Ég er viss um að Bretunum í Búdapest fannst við fjórar
dálítið scary.
25. A.m.k. fannst Alwyn og James við vera scary. Alwyn
viðurkenndi samt fyrir mér að það hefði nú verið hægt að fá verri
stalkera.
26. Mér fannst Áramótaskaupið FRÁBÆRT.
27. Mér finnst Tópas og Ópal mjög mjög gott.
28. Síðustu áramót fannst mér og Heiðrúnu Tópas einum of
góður.
29. Það er svolítið langt um liðið síðan ég var á föstu.
30. Ég elska KFC. Máltíð 11, tvo maísstöngla í staðinn fyrir
frankar og appelsín að drekka.
31. Ég á engan pening í augnablikinu. Jú, mamma var að gefa mér
fimmþúsund....
32. Vinkonur mínar segja að ég sé dekruð. Það er lygi.
33. Mér finnst mjög gaman í Sims.
34. Mér finnst hvítvín, GTR Rosemount, óhugnanlega gott.
35. Ekki jafn hrifin af rauðvíni.
36. Ég er ekki drykkfelld, sjaldan og í hófi er mitt mottó.
37. Mig dreymir rosalega oft mjög langa, skýra drauma. Þeir eru
samt frekar steiktir, eins og í nótt þar sem ég var uppreisnarmaður
í Egyptalandi. Öskraði hluti eins og "Réttarríkið lifir" og söng
bandaríska þjóðsönginn. Svo náðist ég og það átti að hengja mig.
Kannski ég hefði ekki átt að horfa á aftöku Saddams?
38. Ég er á móti dauðarefsingum. Enginn á rétt á því að svipta
annan lífi.
39. Ég ætla að búa á 101 þegar ég verð stærri.
40. Hef samt ekki tök á því núna.
41. Ég er elsta systkinið, og elsta barnabarnið í báðum
ættum.
42. Ég á tvo bræður. Þeir verða fimmtán og þrettán í janúar.
43. Þeir eru ágætir, as far as little brothers go.
44. Ég á tvö frændsystkini. Jón og Gunna hahahahaha.....
45. Sumum þykir ég vera heldur mikill stalker. Ég gæti verið
svona einkaspæjari í gegnum tölvur.
46. Mig langar rosalega til Kanarí aftur um jól og áramót.
47. Ég nota skóstærð 38, stundum 37. Það gerist mjög mjög oft
hjá mér að skórnir eru búnir í minni stærð.
48. Ég hef brotið rúmið mitt tvisvar.
49. Núna er ég með höfuðverk. Aftur.
50. Á eftir er ég að fara og borða + drekka með Helgu, Önnu og
Heiðrúnu. Það vantar Gullu bara allt of mikið 
Jibb, vonandi var þetta skemmtilegra.